top of page

Tilkynningar / fréttir


Aðalfundur 26/2
Boðað er til aðalfundar Kayakklúbbsins fimmtudaginn 26. febrúar 2026. Fundurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst kl. 20:00. Dagskrá verður í samræmi við lög klúbbsins. Samkvæmt 6. grein laga Kayakklúbbsins skulu tillögur að lagabreytingum og önnur málefni, sem krefjast atkvæðagreiðslu og félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum, berast stjórn félagsins minnst tveimur vikum fyrir aðalfund . Við hvetjum áhugasamt félagafólk til að hafa samband við stjórn e

Stjórn
Jan 7


Næturróðrasería 2026
Ferðanefndin rær af krafti inn í nýárið og er klár með næturróðraseríu ársins. Að venju er hún í umsjón meistara Örlygs Sigurjónssonar en að þessu sinni er serían á dagskrá í febrúar, dagana 18/2, 25/2 og 27/2. Nánari upplýsingar má finna í ferðadagskránni.

Ferðanefnd
Jan 6


Gamlársróður
Gleðilega hátíð! Að venju stöndum við fyrir gamlársróðri sem er hefð hjá klúbbnum. Mæting 9:30, sjósett kl.10. Veitingar í boði klúbbsins að róðri loknum. Fjölmennum og róum á móts við nýárið í þessum síðasta klúbbróðri ársins. Vinsamlegast staðfestið þátttöku í Abler til að hægt sé að áætla magn veitinga.

Stjórn
Dec 26, 2025
Ný heimasíða
Eins og þið sjáið þá er ný heimasíða komin í loftið. Hún er unnin í öðru tóli en sú gamla sem komin var til ára sinna. Ennþá er verið að læra á hitt og þetta í þessu nýja tóli og því ekkert ólíklegt að eitt og annað á síðunni taki breytingum á næstu vikum/mánuðum. Ef eitthvað kemur upp sem ekki virkar eða sem þú tekur eftir að þarf að lagfæra þá endilega láttu okkur vita.

Stjórn
Dec 21, 2025
Umsögn um Sundabraut
Stjórn Kayakklúbbsins undirbýr umsögn um Sundabraut Stjórn Kayakklúbbsins vinnur nú að umsögn um Sundabraut sem er til kynningar í Skipulagsgátt. Í samræmi við samþykkt síðasta aðalfundar tekur klúbburinn eingöngu afstöðu til þeirra mála sem hafa áhrif á starfsemi klúbbsins. Umsögnin mun því einblína á atriði sem snúa að aðgengi og öryggi kayakræðara í tengslum við svæði eins og Geldinganes og Kleppsvík. Félagsmenn eru hvattir til að senda ábendingar til stjórnar varðandi ums

Stjórn
Nov 4, 2025


Sundlaugaræfingar 2025
Kayakklúbburinn hefur gert samning við Reykjavíkurborg um leigu á Laugardalslaug fyrir sundlaugaræfingar í vetur.Vegna breytinga á fyrirkomulagi æfingatíma hjá Reykjavíkurborg fyrir íþróttafélög hefur ferlið tekið lengri tíma en við hefðum kosið, og einnig þrengir að starfsemi klúbbsins í lauginni.Eins og í fyrra þarf að greiða aðgangseyri í laugina, auk þess sem klúbburinn greiðir gjald fyrir hverja æfingu og leigu á geymslu.Þátttakendur í sundlaugaræfingum eru því minntir á

Sundlaugarnefnd
Oct 26, 2025


"Óvissuferð" laugardaginn 6.september - samvera, sull og sviti
Nú er dagskrá óvissuferðarinnar komin í ljós. Að þessu sinni munum við eiga samverustund, fara örstutt á sjó í æfingar og sull, fá okkur nesti og því næst færa okkur (bílandi) yfir í Gufunes.Við bryggjuna í Gufunesi verður tekið á móti okkur í rjúkandi gufugusu! Hvað er gufugusa? Í gufugusu leiðir gusumeistari þrjár stuttar lotur inn í gufunni til að mynda með viðeigandi ilmolíum, þara, tónlist, handklæðatilþrifum og blævængjum. Góður hiti í sánunni og kæling í hafinu, grasin

Stjórn
Sep 2, 2025
bottom of page
