Sundlaugaræfingar
Æfingaáætlun haustönn 2026:
Öll þriðjudagskvöld 20.október - 29.desember
Þátttakendur þurfa að tilkynna mætingu fyrirfram í Abler en þar kemur fram nánari tímasetning á æfingunum og jafnframt tilkynnt ef æfing fellur niður. Skráning á mætingu er sáraeinföld aðgerð sem hægt að framkvæma í bæði appinu og eftir innskráningu á www.abler.io
Greiða þarf sundgjald í afgreiðslu sundlaugarinnar á hverri kayakæfingu.
Krafa er gerð um að bátar og búnaður sem fer í laugina sé hreinn.

Sundlaugaræfingar klúbbsins eru haldnar á veturna, frá október/nóvember fram í mars/apríl, og fara þær fram í innilauginni í Laugardalslaug. Þangað eru allir félagar klúbbsins velkomnir.
Á sundlaugaræfingum klúbbsins fer vanalega ekki fram nein skipulögð dagskrá. Æfingarnar eru hugsaðar til þess að félagar geti hist, æft róðartækni, félagabjarganir og veltu eða bara leikið sér og spjallað.
Hægt er að fá lánaða straumbáta, árar og svuntur á sundlaugaræfingunum. Einnig getur fólk mætt með sinn eigin búnað.
Þeir sem koma með sína eigin báta þurfa að fara inn með bátana í inngangi innilaugarinnar næst World Class, og svo er ætlast til að fara aftur út og gegnum afgreiðslu laugarinnar að búningsaðstöðu.
