Velkomnir nýir meðlimir í Kayakklúbbinn
Hér fyrir neðan eru ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir nýja félaga.
Komdu að róa!
Kayakklúbburinn stendur fyrir félagsróðrum frá Geldinganesi á fimmtudögum á sumrin og á laugardögum á veturna.
Sumarvertíðin stendur frá apríl fram til september. Þá er róið á fimmtudögum, mæting er kl. 18.00 og farið á sjó kl.18:30.
Vetrarvertíðin er frá september fram í apríl. Þá er róið á laugardagsmorgnum, mæting kl. 09.30 og farið á sjó kl.10.
Um alla félagsróðra, sumar sem vetur, gildir að hver ferð tekur 2-3 klst. Vanalega eru á milli 10-20 ræðarar í hverjum róðri. Á sumrin er stundum tekið kaffihlé. Við mælum með því að reynsluminni ræðarar fari í sína fyrstu félagsróðra þegar vel viðrar til róðra.
Hægt er að fá lánaða báta, árar, svuntur og björgunarvesti í félagsróðrum. Eitthvað er til af blautgöllum og vatnsheldum toppum en þurrgalli er algjört nauðsyn nema etv. yfir hásumarið, og við mælum klárlega með að vera í þurrgalla allt árið.
Við mælum einnig eindregið með því að nýliðar fari fyrst á byrjendanámskeið og síðan í sérstakan nýliðaróður ef slíkt er í boði. Alls ekki er mælt með að mæta í félagsróður ef viðkomandi er að setjast í bát og fara á sjó í fyrsta skipti. Við bjóðum nýja ræðara sem lokið hafa byrjendanámskeiði hjartanlega velkomna í félagsróður. Hjá okkur færðu róðrarreynslu og félagsskap. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef það er eitthvað óljóst eða ef þú vilt frekari upplýsingar áður en þú mætir í félagsróður.
Aðstaða Kayakklúbbsins
Kayakklúbburinn hefur aðstöðu til að geyma báta á tveimur stöðum í bænum. Hægt er að geyma sjókayaka í gámabyggðinni okkar á eiðinu við Geldinganes og í geymsluhúsi okkar við ylströndina í Nauthólsvík. Sjá nánar undir aðstaðan.
Geymsluplássið er því miður takmarkað þannig að alltaf getur sú staða komið upp að ekki sé pláss fyrir fleiri báta í hverri geymslu.
Minnt er á að Kayakklúbburinn ábyrgist ekki báta geymslu og tryggir ekki báta félagsmanna. Við hvetjum félagsmenn sem eiga báta í geymslu að huga að tryggingum þeirra hjá sínu tryggingafélagi.
Sundlaugaræfingar
Sundlaugaræfingar klúbbsins eru haldnar á veturna og fara þær fram í innilaug Laugardalslaugarinnar, á sunnudögum milli klukkan 16:00 og 18:00. Vegna sundmóta um helgar falla æfingar stundum niður og því er þarf að fylgjast hvort æfingar séu haldnar í dagskránni á vefnum eða Abler eða Facebook. Borga þarf sig inn í sund þegar farið er á kayakæfingu. Á sundlaugaræfingum fer vanalega ekki fram nein skipulögð dagskrá, æfingarnar eru hugsaðar til þess að félagar geti hist, æft róðartækni, félagabjarganir og veltur eða bara leikið sér og spjallað.
Hægt er að fá lánaða straumbáta, árar og svuntur á sundlaugaræfingunum. Einnig getur fólk mætt með sinn eigin búnað. Skilyrði er að þeir bátar og sá búnaður sem fer í laugina sé hreinn, og kayakar lausir við sand. Ef fólk vill koma með sína eigin báta, þá er gengið inn með kayakana í enda innilaugarinnar, þ.e. innganginn á horninu næst Laugum.
Ferðir
Kayakklúbburinn fer reglulega í ferðir frá vori fram á haust. Ferðir eru auglýstar í dagskrá klúbbsins og eru öllum félögum (og velunnurum) klúbbsins opnar, en félagsmenn hafa forgang ef nauðsyn er fjöldatakmörkunum.
Þeir sem taka þátt í dagskrá klúbbsins gera það á eigin ábyrgð.
Allar ferðir eru flokkaðar eftir erfiðleikastigi sem hægt er að sjá hér, en fyrir byrjendur er gott að hafa samband við fararstjóra ferðar til að tryggja að ferðin henti viðkomandi.
Félagsgjöld
Félagsgjöld fyrir einstaklinga er 8.000 kr.
Geymslugjöld
Aðstöðu- og geymslugjald í Nauthólsvík og Geldinganesi er 13.000 kr. fyrir sjókayaka.
Reikningar eru gefnir út á vorin.
Umgengni
Almenningur hefur rétt á að ferðast um óbyggðir Íslands hvernig sem ferðamátinn er og hver tilgangurinn með ferðinni er. Engin tegund ferðamennsku er öðrum æðri og enginn hefur rétt til yfirgangs. Við þurfum fyrst og fremst að vera kurteis og tillitsöm við hvort annað og virða þarfir hvors annars. Við virðum náttúruna og spillum henni á engan hátt.
Þetta er tekið úr uppkasti að umgengnisreglum SAMÚT. Kaflinn er mjög almennur og höfðar því til okkar allra. Við þennan kafla má bæta að ef að kayakfólk róir fram á stangveiðimenn er æskilegt að reyna að komast framhjá þeim án þess að valda mikilli truflun. Ef að til orðaskaks kemur er gott að muna að við eigum umferðarrétt á vatninu þó svo að þeir eigi veiðirétt eða jafnvel land að ánni/vatninu.

