top of page
Allir flokkar


Kjalarnes-Akranes
Nú þegar er komið að næsta lið í stífri dagskrá Ferðanefndar. Í þetta skiptið ætlum við að róa frá Kjalarnesi upp á Akranes. Sjósett verður neðan við Klébergsskóla í miðri Hofsvíkinni á Kjalarnesi. Þaðan róum við fyrir Kjalarnesið og norðureftir, þverum 4 km yfir Hvalfjörð og höldum áfram vestur undir Akrafjallinu. Ferðin endar á austanverðum Langasandi á Akranesi við dvalarheimilið Höfða. Að róðri loknum er tilvalið að skella sér í sjósund og heita potta í Guðlaugu (lokar kl
Ferðanefnd
3 hours ago


Sólstöðuvatnastuð 2026
Þá er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir. Sólstöðuvatnastuð 2026. Að þessu sinni verður farið í Reyðarvatn sem staðsett er stutt frá Ok og Skjaldbreið. Þangað er nokkuð greiðfært öllum bílum en hugsanlega þarf að selflytja báta síðasta spölinn á jeppum ef slóðinn niður að vatni er slæmur. Reyðarvatn er býsna stórt stöðuvatn í uppsveitum Borgarfjarðar og er uppspretta Grímsár í Borgarfirði. Staðsetning Reyðarvatns Þetta verður léttur róður, nóta ekki þjóta. Erfiðl
Ferðanefnd
Jun 15


Sjáumst á sjó - Nýliðaróður
Nú hefst nýliðaróður og kynningarsería sumarsins fyrir þá sem eru að dusta rykið af sér eða hafa áhuga á að prufa róður. Hvenær: Föstudaginn 5. júní kl. 17:00. Hvar: Aðstaða klúbbsins við Geldinganes. Mikilvægt að hafa í huga: Þetta er kynningarviðburður og kemur ekki í stað formlegs byrjendanámskeiðs. Klúbburinn er með takmarkaðan fjölda báta, þannig að skráning tryggir ekki bát. Þátttakendur verða að vera 18 ára eða eldri. Klúbburinn útvegar báta og árar, en þátttakendur þ
Stjórn
Jun 2


Hörpuróður
Sjómannadaginn sunnudaginn 7. júní verður hinn hefðbundni Hörpuróður Kayakklúbbsins. Brottför er frá Geldinganesi, en einnig er hægt að sjósetja á sandströndinni við Skarfaklett og sameinast þar Geldinganeshópnum á miðri leið. Við róum svo meðfram strandlengjunni áleiðis inn í Reykjavíkurhöfn og lendum við Sjóminjasafnið um kl.14 þar sem tekið verður gott kaffistopp. Brottför kl.15 og róið til baka sömu leið. Erfiðleikastig róðurs er 1 ár (sjá nánar hér) þannig að hann hent
Stjórn
May 30
bottom of page
