top of page

Sundlaugardagur sjónskertra

Writer: Stjórn
Stjórn
11 minutes ago
1 min read

Kæru félagar,


Laugardaginn 17. október kl. 14:00 tekur Kayakklúbburinn á móti 15 sjónskertum ungmennum á aldrinum 15–22 ára í Laugardalslaug.

Þetta er sambærilegur viðburður og var í fyrra, sem var bæði skemmtilegur og gefandi.

Með hópnum verða kennarar sem sjá um skipulag og utanumhald. Okkar hlutverk er að kynna grunnatriði kayakróðurs og aðstoða þátttakendur, bæði á bakkanum og í lauginni.

Ef þú hefur tök á að vera með væri frábært að fá staðfestingu frá þér á Fésbókarspjallinu okkar, með því að haka við mætingu í Abler eða senda okkur tölvupóst. Við vonumst til að sjá sem flesta taka þátt.


Bestu kveðjur,

Stjórn Kayakklúbbsins og sundlaugarnefnd

bottom of page