Sundlaugaræfingar

Nú er klúbburinn búinn að landa samningi um næstu æfingatíma í sundlauginni.
Fram kom vilji á síðasta aðalfundi að hafa tímana á virkum dögum í stað sunnudaga. Að þessu sinni verða tímarnir á þriðjudagskvöldum og vonum við að það mælist vel fyrir.
Klúbburinn greiðir Reykjavíkurborg fyrir tímana og eru þeir einungis í boði fyrir virka félagsmenn.
Gerð er krafa um þátttakendur tilkynni mætingu fyrirfram í Abler en þar koma fram nánari tímasetningar. Skráning á mætingu er sáraeinföld aðgerð sem hægt er að framkvæma bæði í appinu og eftir innskráningu á www.abler.io
Eins og áður þarf einnig að greiða aðgang í laugina og tryggja að bátar og allur búnaður sé hreinn.
Einungis liggur fyrir samningur fram að áramótum og því óljóst hvort tímarnir verði á sama tíma eftir áramót.
Fyrir þá sem eru ekki meðlimir í klúbbnum en hafa áhuga á mæta þá eru upplýsingar um félagsaðild á https://www.kayakklubburinn.is/skraning
Góða skemmtun í lauginni
kveðja
stjórnin



