
Ferðadagskrá 2026
.jpg)
Næturróðrasería
Umsjón: Örlygur
NR I: 18. febrúar
Mæting kl. 19:30. Róið á sundunum og komið í land kl. 21:30.
NR II: 25. febrúar
Mæting kl. 19:30. Róið á sundunum og komið í land kl. 21:30.
NR III: 28. febrúar
Mæting kl. 21:00 og róið í Þerney og tjaldað.
Það verður leynigestur í þessum róðri. Frægur. Og svo er happdrætti. Þökk, Nefndin.
23. apríl. Sumardagsróður
Erfiðleikastig: 1 ár
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Þetta er tveggja klúbba róður. Sjósett á Búðaflöt, Álftanesi kl. 10:10 og róið í Hafnarfjarðarhöfn með Þytsfélögum. Til að komast á upphafsstað róðurs (terminus ad quem) er ekinn Álftanesvegur, beygt af hringtorgi, (Fógetatorgi) inn á Suðurnesveg, svo Höfðabraut og loks Búðaflöt.
Heildarvegalengd: 12 km.
10. maí. Neskaffi í Nesvík
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón Örlygur Sig.
Sjósett kl. 13 á Geldinganesi og róið norður um Lundey og tekið kaffistopp í Nesvík undir Brautaholtsborg. Sama leið til baka. Þetta er drjúg dagsferð sem sameinar allt sem kajakræðarar geta beðið um og meira til.
Heildarvegalengd: 20 km.
6. júní. Borgarnes - Stóra Brákarey
Erfiðleikastig: 1-2 árar
Umsjón: S. Perla Thorsteinson
Fyrirhugað er að sjósetja frá rampinum í Stóru-Brákarey og taka góðan hring um Borgarvoginn, ströndin þrædd Mýrarmegin að Langatanga þar sem Rauðanesviti stendur og til baka, framhjá Grjótey. Vegalengd ca 10 km
7. júní. Hörpuróður
Erfiðleikastig: 1 ár
Umsjón: Stjórnin
Hörpuróður á sjómannadaginn. Nánari upplýsingar er nær dregur.




20. - 21. júní. Sólstöðuvatnastuð – Reyðarvatn (tjaldferð)
Erfiðleikastig 1-2 árar:
Umsjón: Sveinn Elmar Magnússon
Nánari upplýsingar er nær dregur.
27. júní. Akranes
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: Susanne Möckel
Annað hvort verður róið frá Kjalarnesi að Akranesi, eða hringur frá Akranesi. Fer eftir aðstæðum.
Nánari upplýsingar er nær dregur.
4. – 5. júlí. Flatey á Breiðafirði (tjaldferð)
Erfiðleikastig: 3 árar
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Ferðin byrjar á Stykkishólmi að morgni hins 4. júli. Tökum Breiðafjarðaferjuna Baldur yfir í Brjánslæk kl. 9 og róum þaðan suður í Flatey með viðkomu í hinni sögufrægu Hergilsey. 25 km dagur. Gist í Flatey, í tjöldum eða á hótelinu. Daginn eftir er val um að róa til baka í Brjánslæk með viðkomu í Skjaldmeyjareyjum - eða taka Baldur suður í Hólminn. Panta þarf ferðir í Baldur með góðum fyrirvara. Hægt er fá endurgreitt ef við þurfum að aflýsa vegna veðurs. Einnig þarf að passa upp á hagnýt atriði eins og ef leiðangursmaður sem fer með Baldri í Hólminn á sunnudeginum sé með aðgengi að bíl - sínum eigin - eða lánsbíl.
25. júlí. Þingvallavatn
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: S. Perla Thorsteinson
Róið frá Nesjum að Sandey þar sem áð verður og eyjan skoðuð (fýsi mönnum svo). Róin er góður hringur til baka en Þingvallavatn skartar einstaklega mikilli jarðmyndun (hvort heldur sem er ofan- eða neðansjávar).
7. - 9. Ágúst. Breiðafjörður (tjaldferð)
Erfiðleikastig: 3 árar
Umsjón: Lárus Guðmundsson
Þá er komið að hinni margrómuðu og sívinsælu Breiðafjarðarferð. Nánari upplýsingar er nær dregur.
12. ágúst. Sólmyrkvaróður
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: Ferðanefnd
Almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954.
Nánari upplýsingar er nær dregur.
29. – 30. Ágúst. Málmey – Skagafjörður (tjaldferð)
Erfiðleikastig: 3 árar
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Sjósett á Höfðamöl, Þórðarhöfða, af Siglufjarðarvegi (nr. 76) kl.15. Róið útí Málmey, hún hringuð eftir aðstæðum og lent á henni vestanverðri og kjagað upp á koll hennar til gistingar. Þessi dagur er 7 - 12 km langur. Daginn eftir róið suður fyrir Þórðarhöfða og nesti tekið á Bæjarmöl. Þaðan róið suður í Hofsós. Einn bíll a.mk. geymdur þar, 15 km dagur. 4,5 klst akstur er frá hfbsvæðinu á upphafsstað róðurs (terminus ad quem). Upplagt er líka að fara daginn áður og gista á tjaldstæðinu á Hofsósi.
Viðlegubúnaður og prímus, þetta er mikið ævintýri á alveg einstökum slóðum. Fyrirvari um veður.
9. október. Friðarsúluróður
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: Nefndin
Árlegur viðburður í dagskrá klúbbsins. Róið út í Viðey og fylgst með tendrun friðarsúlunnar.
21. Október. Ljósaskiptaróður á Elliðavatn.
Erfiðleikastig: 1 ár
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Mæting kl. 17.30 við Fornahvarf, (af Vatnsendavegi) og róið út að Helluvaði. Við höfum ekki komist í Ljósaskiptaróður síðan 2022 og upplagt að endurnýja kynnin og setja sig í gírinn fyrir Næturróðraseríu.
28. október. Næturróður I
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Mæting kl. 19.30. Róið um sundin blá frá Geldinganesi. Nánar síðar.
4. nóvember. Næturróður II
Erfiðleikastig: 2 árar
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Mæting kl. 19.30. Róið um sundin blá frá Geldinganesi. Nánar síðar.
6. nóvember Næturróður III (tjaldferð)
Erfiðleikastig: 2-3 árar
Umsjón: Örlygur Sigurjónsson
Róið frá Geldinganesi út í nærliggjandi eyju og tjaldað þar. Nánar síðar.


Ferðanefnd áskilur sér rétt til að bæta við óvæntum glaðningi ef svo ber undir. Sem fyrr væri slíkur glaðningur háður veðri og vindum.
