top of page

Um klúbbinn

Kayakklúbburinn var stofnaður  í Reykjavík vorið 1981 og voru stofnfélagarnir níu talsins.

Klúbburinn stækkaði hratt og nú er fjöldi félagsmanna um þrjúhundruð (2026).

Starfsemin skiptir í tvær deildir, sjókayak- og straumvatnsbátadeild. Fyrstu árin snerist starfsemi klúbbsins að mestu um kayakróður í straumvatni, en áhugi á róðri á sjó jókst hratt og mikill meirihluti félagsmanna tilheyrir nú sjókayakdeild klúbbsins.

Aðstaða klúbbsins er á eiðinu við Geldinganes en bátageymslur eru bæði í Geldinganesi og í Nauthólsvík.

Tilgangur klúbbsins er að stuðla að iðkun kayakróðurs, skipuleggja keppnir og kayakferðir af ýmsum toga. Ávallt hefur verið lögð áhersla á að auka þekkingu og færni félagsmanna og stuðla þannig að ánægjulegum og sem öruggustum róðri bæði á sjó og vatni.

bottom of page