top of page
Lykla- og aðgengismál Geldinganesi
Í Geldinganesi er innhringibúnaður á farsímanetinu þar sem notandinn hringir í ákveðið símanúmer til þess að opna hurðina á kaffigámnum, og helst læsingin opin í 5 sek. í senn. Lyklar að öllum gámum eru í lyklakassa við dyrnar til hægri þegar gengið er inn. Þessum lyklum þarf að skila á sinn stað áður en haldið er á sjó þannig að þeir séu klárir fyrir næsta félaga sem mætir til róðurs eða kemur að landi meðan viðkomandi er á sjó. Síðasti maður sem yfirgefur svæðið þarf að passa að hurðin sé örugglega læst, ágætt að staðfesta það með því að taka í húninn.
Félagsmenn með kayak í geymslu og þeir sem hafa verið meðlimir í 1 ár eða lengur geta óskað eftir að fá símanúmer sitt skráð í kerfið með því að fylla út formið hér fyrir neðan.

bottom of page
