top of page

"Óvissuferð" laugardaginn 6.september - samvera, sull og sviti

  • Writer: Stjórn
    Stjórn
  • Sep 2
  • 1 min read

ree

Nú er dagskrá óvissuferðarinnar komin í ljós. Að þessu sinni munum við eiga samverustund, fara örstutt á sjó í æfingar og sull, fá okkur nesti og því næst færa okkur (bílandi) yfir í Gufunes.Við bryggjuna í Gufunesi verður tekið á móti okkur í rjúkandi gufugusu!

Hvað er gufugusa?Í gufugusu leiðir gusumeistari þrjár stuttar lotur inn í gufunni til að mynda með viðeigandi ilmolíum, þara, tónlist, handklæðatilþrifum og blævængjum. Góður hiti í sánunni og kæling í hafinu, grasinu eða loftinu á milli.Gusan tekur rétt rúman klukkutíma.Mikilvægt er að koma með tvö handklæði, eitt til að sitja á inni í gufunni (svokallað svitaklæði) og annað til að þurrka sér eftir á. Einnig er mikilvægt að drekka vel og gott að taka með sér vatnsbrúsa fullan af fersku vatni. Svo er ljúft að hafa slopp til að smeygja sér í á milli og á eftir. Gott er að koma í sundfötum innan undir fötunum, annars er smá skiptiaðstaða í vagninum.

Dagskrá:10:30 - Mæting í Geldinganes Göllum okkur, sullum, æfum og leikum12:30 - Göngum frá bátum, nestum okkur14:00 - Færum okkur í gufunes í rjúkandi gufugusu            (Hafa þarf með sundföt, tvö handklæði og vatnsbrúsa)

Mikilvægt:Aðeins er pláss fyrir 30 manns í gufunni og verður þetta því fyrstur kemur (skráir sig) fyrstur fær! Skráningin fer fram í Abler

(Ef einhver hefur ekki áhuga á að fara í gufuna en langar að koma að hitta hópinn, sulla með á kayak og segja góða brandara þá er það mikið meira en velkomið og þar með skráning óþörf)

kveðja, Natalía - 8465889Hlakka til að sjá ykkur!

Recent Posts

See All
Ný heimasíða

Eins og þið sjáið þá er ný heimasíða komin í loftið. Hún er unnin í öðru tóli en sú gamla sem komin var til ára sinna. Ennþá er verið að læra á hitt og þetta í þessu nýja tóli og því ekkert ólíklegt a

 
 
Umsögn um Sundabraut

Stjórn Kayakklúbbsins undirbýr umsögn um Sundabraut Stjórn Kayakklúbbsins vinnur nú að umsögn um Sundabraut sem er til kynningar í Skipulagsgátt. Í samræmi við samþykkt síðasta aðalfundar tekur klúbbu

 
 
bottom of page