top of page

Hörpuróður

  • Writer: Stjórn
    Stjórn
  • 15 hours ago
  • 1 min read

Sjómannadaginn sunnudaginn 7. júní verður hinn hefðbundni Hörpuróður Kayakklúbbsins. Brottför er frá Geldinganesi, en einnig er hægt að sjósetja á sandströndinni við Skarfaklett og sameinast þar Geldinganeshópnum á miðri leið.  Við róum svo meðfram strandlengjunni áleiðis inn í Reykjavíkurhöfn og lendum við Sjóminjasafnið um kl.14 þar sem tekið verður gott kaffistopp.  Brottför kl.15 og róið til baka sömu leið.


Erfiðleikastig róðurs er 1 ár (sjá nánar hér) þannig að hann hentar einnig minna vönum meðlimum, en þó skal hafa í huga að heildarvegalengd frá Geldinganesi er 18 km sem er umtalsvert lengra en hinir hefðbundnu félagsróðrar klúbbsins.  Róður frá Skarfakletti er helmingur af þeirri vegalengd.  Mundu eftir að taka með þér gott nesti og eitthvað að drekka.


Geldinganes - Brottför kl.12:00, koma kl.17 (18 km)

Skarfaklettur - Brottför kl.13:00, koma kl.16 (9 km)

Kaffistopp við Sjóminjasafnið 14:00-15:00


Fjölmennum, sýnum okkur og sjáum aðra og heiðrum sjómannastéttina. Þetta er að sjálfsögðu okkar hátíðardagur líka. 😎


Umsjón: Arnar Már






bottom of page