Fréttir af aðalfundi
- Stjórn

- Mar 2
- 1 min read
Aðalfundur Kayakklúbbsins fór fram þann 26. febrúar að viðstöddum fjölda félagsmanna und
ir styrkri stjórn Kristins Hjálmarssonar fundarstjóra. Dagskrá var hefðbundin, skýrsla stjórnar og skýrslur nefnda voru lagðar fram og reikningar samþykktir. Líflegar umræður voru um ýmis mál sem tengjast hagsmunum félagsmanna, til að mynda um æfingatíma í sundlauginni og aðstöðumál. Sérstaklega var vakin athygli á endurnýjaðri heimasíðu klúbbsins og átakinu „varðveitum sögu Kayakklúbbsins“ þar sem verið er að safna myndum úr starfinu.
Ein breyting varð á stjórn, en Susanne Möckel lét staðar numið í bili og Valgeir Elíasson tók aftur sæti í stjórn.



