Kjalarnes-Akranes
- Ferðanefnd

- 18 hours ago
- 1 min read
Nú þegar er komið að næsta lið í stífri dagskrá Ferðanefndar. Í þetta skiptið ætlum við að róa frá Kjalarnesi upp á Akranes.
Sjósett verður neðan við Klébergsskóla í miðri Hofsvíkinni á Kjalarnesi. Þaðan róum við fyrir Kjalarnesið og norðureftir, þverum 4 km yfir Hvalfjörð og höldum áfram vestur undir Akrafjallinu. Ferðin endar á austanverðum Langasandi á Akranesi við dvalarheimilið Höfða.
Að róðri loknum er tilvalið að skella sér í sjósund og heita potta í Guðlaugu (lokar kl.18).
Heildarvegalengd er 24km og má reikna með 2 kaffistoppum á leiðinni.
Þar sem þetta er A til B ferð þarf að skipuleggja flutning á bátum, bílum og mannskap milli staða og því nauðsynlegt að þátttakendur skrái sig. Skráning fer fram í Abler.
Ráðgert er að hafa bíla sem skilja á eftir á Akranesi klára kl. 9:30 þannig að hægt sé að ýta úr vör á Kjalarnesi ekki síðar en kl.10:30.
Erfiðleikastig ferðar er 3 árar (sjá nánar hér) og hún hentar því ekki byrjendum.




