Reykjavíkurbikarinn og fleira skemmtilegt.
Helgina 19-20 Mai verður ýmislegt að gerast, En á laugardeginum kl.10 á að ræsa í Reykjavíkurbikarinn og um kvöldið stendur til að róa frá Geldinganesinu út í Viðey, gista þar um nóttina og róa svo til baka daginn eftir.
Fyrir námsfúsa verður svo haldið námskeið í laugardalsauginni laugardag og sunnudag frá kl. 16-18.
Hefðbundin félagsæfing er svo í lauginni frá 17-19.30. á sunnudeginum.