top of page

Lykla- og aðgengismál Geldinganesi

Í Geldinganesi er innhringikerfi á farsímanetinu þar sem notandinn hringir í ákveðið símanúmer til þess að opna hurðina á kaffigámnum.

Það opnar læsinguna í  5 sek.  Í gráum lyklakassa við rafmagnstöfluna í horninu, rétt innan við dyrnar til hægri, þegar menn ganga inn eru lyklar merkir öllum gámum.  Þessum lyklum þarf að skila á sinn stað áður en menn halda á sjó þannig að þeir séu klárir fyrir næsta félaga sem mætir til róðurs eða kemur að landi meðan viðkomandi er á sjó. Síðasti maður sem yfirgefur svæðið þarf einnig að passa að hurðin sé örugglega læst, ágætt að staðfesta það með því að taka í húninn.

Allir félagsmenn með kayak í geymslu eða félagsmenn á sínu öðru félagsári geta óskað eftir að fá símanúmerið sitt skráð í kerfið með því að fylla út formið hér fyrir neðan.

1762982828425_edited.jpg

Ósk um aðgang að félagsaðstöðu.

Fylla þarf út alla stjörnumerkta reiti

bottom of page