Öryggisstefna félagsróðra
Allir sem taka þátt í róðrum á vegum Kayakklúbbsins eru þar á eigin ábyrgð.
Róðrastjórar félagsróðra eru tilnefndir af stjórn Kayakklúbbsins, og skulu vera virkir ræðarar og með nægjanlega kunnáttu og reynslu í það hlutverk að mati stjórnar.
Í upphafi félagsróðurs, áður en sjósett er skulu róðrarstjórar hafa frumkvæði að því að tala við nýja félaga og meta hvort þeim sé óhætt að fara á sjó miðað við veður og sjólag. Aðrir ræðarar skulu ávallt gera sitt besta til að stuðla að auknu öryggi róðurs og vera meðvitaðir um að geta verið kallaðir til aðstoðar ef þurfa þykir.
Hlutverk róðrarstjóra:
-
Kynna sjálfan sig og tilkynna ferðaáætlun
-
Meta hópinn m.t.t. reynslu og aðstæðna
-
Telja fjölda ræðara á sjó
-
Velja einn ræðara til að reka lestina og annan til að vera fremstan (eftir aðstæðum)
-
Leiða hópinn og ákveða nákvæma róðraleið eftir aðstæðum hverju sinni
-
Samþykkja/vita þegar hópnum er skipt upp
-
Vera stjórnandi á vettvangi þegar hætta skapast
Nýliðar eru eindregið hvattir til að sækja byrjendanámskeið fyrir sinn fyrsta félagsróður og vera ekki að setjast í bát í fyrsta skipti í félagsróðri. Róðrarstjóri skal ganga úr skugga um að sérhver nýliði (sem helst hefur gengið inn í þar til gert nýliðaprógram klúbbsins) hafi a.m.k. einn stuðningsaðila (tengilið) sem fylgist með honum meðan á róðri stendur. Við stjórnina skal róðrarstjóri stöðugt meta sjólag og tryggja eftir því sem kostur er að hópurinn fari ekki inn í aðstæður þar sem hætta getur skapast.
Þeir sem óska eftir að yfirgefa hópinn skulu gera það í samráði við róðrastjóra. Reyndir félagar yfirgefi ekki hópinn ef róðrarstjóri telur þörf fyrir stuðning þeirra.
Skilyrðislaus regla í félagsróðrum er að vera í björgunarvesti. Klúbburinn leggur einnig þunga áherslu á notkun vandaðra hlífðarfata á sjó sem henta m.v. árstíma s.s. þurrgalla, Neopren hettur, lúffur, þurra aukapeysu, aukahúfu og vettlinga.
Klúbburinn hvetur alla reyndari ræðara til að hafa búnað í bátnum til að hlýja a.m.k. tveim ræðurum sem hafa lent á sundi.
Mikilvægt að hafa meðferðis a.m.k. 1 tæki sem nýtist til að kalla til aðstoð í neyð, s.s. síma, VHF talstöð, InReach tæki, PLB o.þ.h.
Einnig er mælt með að hafa lágmarks viðgerðasett eða bátaflot sem nýtist ef bátur tekur inn á sig sjó vegna þess að lúgulok týnist eða gat kemur á bát.
Komi upp erfiðar aðstæður eða björgun, stjórnar róðrarstjóri aðgerðum á vettvangi, einkum með því að skipta verkum og fela reyndari ræðurum verkefni. Vettvangsstjórnun getur falist í að kalla á utanaðkomandi hjálp og koma í veg fyrir frekari óhöpp og/eða slys.
Mælst er til þess að reynslumeiri félagar hafi dráttarlínu, hjálm, lensidælu og annað sem verða má til stuðnings við erfiðar aðstæður.
Klúbburinn boðar formlegar björgunaræfingar sem koma þá í stað félagsróðurs, venjulega a.m.k. eina á hvorri önn. Þeim æfingum er sérstaklega beint að nýliðum sem ekki hafa æft sjóbjörgun og þeir hvattir til að prófa í því skyni að auka þekkingu og færni. Auk þess eru félagar hvattir til að auka færni sína saman með óformlegum æfingum þegar færi gefst.
