Sundlaugaræfingar
Æfingaáætlun 2025:
Haustönn
-
2.nóvember
-
̶9̶.̶n̶ó̶v̶e̶m̶b̶e̶r̶
-
16.nóvember
-
23.nóvember
-
̶3̶0̶.̶n̶ó̶v̶e̶m̶b̶e̶r̶
-
̶7̶.̶d̶e̶s̶e̶m̶b̶e̶r̶
-
14.desember
Vorönn
-
birt síðar
*Æfingar sem falla niður v/sundmóta eða af öðrum ástæðum eru yfirstrikaðar
Greiða þarf sundgjald í afgreiðslu sundlaugarinnar á hverri kayakæfingu.
Krafa er gerð um að bátar og búnaður sem fer í laugina sé hreinn.

Sundlaugaræfingar klúbbsins eru haldnar á veturna, frá október/nóvember fram í mars/apríl, og fara þær fram í innilauginni í Laugardalslaug.
Æfingarnar eru haldnar á sunnudögum á milli klukkan 16:00 og 18:00. Þangað eru allir félagar klúbbsins velkomnir.
Á sundlaugaræfingum klúbbsins fer vanalega ekki fram nein skipulögð dagskrá. Æfingarnar eru hugsaðar til þess að félagar geti hist, æft róðartækni, félagabjarganir og veltu eða bara leikið sér og spjallað.
Hægt er að fá lánaða straumbáta, árar og svuntur á sundlaugaræfingunum. Einnig getur fólk mætt með sinn eigin búnað.
Þeir sem koma með sína eigin báta þurfa að fara inn með bátana í inngangi innilaugarinnar næst World Class, og svo er ætlast til að fara aftur út og gegnum afgreiðslu laugarinnar að búningsaðstöðu.
