Ts. ítalskur eðalgripur - SeaWolf.

07 nóv 2013 21:08 - 07 feb 2014 09:52 #1 by gunnarsvanberg
Er að selja ítalska eðalbátinn minn, Sea Wolf. Báturinn er i ítölsku fánalitunum (grænn, rauður og hvítur) og er mjög vel með farinn.

Fyrir þá sem ekki þekkja þá er Sea Wolf einstaklega stöðugur án þess að fórna hraða. Báturinn er með stýri sem auðvelt er að taka upp frá mannopinu. Einnig eru fótstígin í bátnum stór sem skilar sér í auknum krafti og betri nýtingu á orku frá fótspyrnunni. Mannopið er stórt og þvi auðvelt að taka (re-entry) og sætið mjög þægilegt. Báturinn er með góðum lúgum og því einnig hentugur sem ferðabátur.
Að mínu mati er þetta einn besti alhliða kayak sem hægt er að fá...enda fara þeir ekki oft í endursölu.
Ástæða sölunnar er að ég er alveg farinn yfir í surfski og ætla að bæta öðru sliku við í dótakassann.
Báturinn er í Reykjavík en ég get tekið af honum myndir og sent ef kaupandi utan af landi hefur áhuga.
Það má lesa betur um bátinn á heimasíðu framleiðanda.
www.qajaq.it/Modelli_eng.html#

Verð: 250.000,-
Lækkað verð: 235þ.

Kv.Gunnar Svanberg
gunnar(att)gunnarsvanberg.com
S: 8616000

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum