Jæja þá er komið að því sem ég hélt að myndi aldrei gerast.
Point65 Whisky 16 báturinn minn er falur.
Þetta er án allra ýkja einn af skemmtilegri bátum. Hentar mjög vel sem byrjenda bátur og líka fyrir þá sem lengra eru komnir í sportinu.
Báturinn er með mikinn fyrri stöðuleika sem gerir hann klett stöðugan. Er frekar hraður miðað við lengd og svarar gríðarlega vel öllum hreyfingum, s.s. edge o.þ.h.
Hentar því mjög vel til að ná færni í þessum grunn tækni þáttum sem allir ræðarar sem halda áfram í sportinu vilja ná tökum á.
Báturinn er hannaður af Nigel Foster, sem fyrstur reri umhverfis Ísland og er þekktur snillingur í áratækni.
Báturinn er alveg eins og þessi sem Nigel Foster er á í videoinu, blár að lit og er mjög vel með farin.
Báturinn er með ugga en einngi er gert ráð fyrir að hægt sé að setja á hann stýri
Video með Nigel Foster
Linkur á framleiðenda
Hann fæst á 250 þús með fiber ár...
Upplýsingar í síma 8661866 eða oimsland@gmail.com