Maligiaq Johnsen Padilla á Íslandi í sumar

30 apr 2012 17:30 #31 by Ingi
Nú ætlar Maligiaq Padilla að heiðra okkur með nærveru sinni í sumar.

Á leið sinni til Grænlands stoppar hann hér og ætlar að halda námskeið í grænlenskri áratækni ef næg þátttaka fæst og ef vel tekst til er möguleiki á að fá hann til að hafa annað eins þegar hann kemur við í bakaleiðinni.

Flugdagsetningarnar eru 22 til 24 júní og 18 til 21 júlí, og hann er semsagt að spá í að hafa kennslu á þessum dögum á milli flugferða.

Ef menn eru spenntir fyrir þessu læt ég hann vita og þá er hægt að skipuleggja þetta eitthvað betur.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum