Takk fyri það Ingi, það gæti komið sér vel á morgun því við fáum í heimsókn vanan kayakpóló ræðara sem hefur æft með liði í Denmark. og hann gæti kannski kennt okkur sitt af hvoru, eins og td. reglurnar í kayakpóló!
Það urðu umræður um mörkin sem notuð eru í Kayakpóló á sunnudögum í gærkvöldi og það er skemmst að segja frá því að ég fór beint niðureftir í Laugardalslaugina þar sem haldinn var aðalfundur Sundknattleiksfélags Reykjavíkur og rétt náði í restina á þeim fundi. Ég spurðist fyrir um þetta mál og enginn hafði nokkurntímann kvartað yfir því að kayakmenn hefðu notað mörkin. ÍTR á þau og okkur er öllum frjálst að nota þau.
Voila!
Kv.
Ingi