Sundlaugaræfing 20. febrúar

22 feb 2022 16:46 #1 by indridi
Allt fór fram með ró og spekt - eitthvað um 10 ræðarar mættu til að æfa listir sínar, bæði straum- og sjókayakræðar. Grunna laugin á sínum stað. 

Indriði

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

20 feb 2022 10:17 #2 by indridi
Það er sundlaugaræfing í dag, 20. febrúar.

Þetta er, eins og fram hefur komið, frábær aðstaða til að æfa allt, ekki bara veltur. Þegar eitthvað klúðrast (og ef maður er í alvöru að reyna, þá klúðrast alltaf eitthvað) þá er 28°C hlýtt sundlaugarvatnið eitthvað svo mikið notalegra en sjórinn, sem er víst um 2°C um þessar mundir.

Mæta. Höfum laugina frá 16-18.

Indriði

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum