Ekki-tæknikeppni frestast um óákveðinn tíma

14 mar 2020 00:15 #1 by Helga
Því miður er ekki-tæknikeppninni frestað um óákveðinn tíma vegna Covid-19. Við í ekki-keppnisnefndinni lofum fullt af 🏅 og góðri skemmtun þegar þessi óákveðni tími er liðinn.
Helga, Ingi og María.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

24 feb 2020 20:29 #2 by Helga
Gott er að nota tækifærið næstu sunnudaga og æfa sig fyrir ekki-tæknikeppnina sem verður eftir rúman mánuð. Ekki verður um eiginlega keppni að ræða heldur fá allir sem geta klárað æfingarnar medalíu. Hvorki verður um tímatöku né mikinn keppnisanda að ræða heldur stefnum við á skemmtilega stund þar sem við öll æfum okkur í mikilvægri tækni og komum saman og höfum gaman. 

Þeim sem langar ekki að leika listir sínar geta mætt á áhorfendabekki eða slakað á í pottinum á meðan hinir leika sér.

Til að fá medalíu þarftu að:

1. Taka veltu til beggja hliða.
2. Róa til hliðar að bakkanum með frjálsri aðferð og svo aftur tilbaka.
3. Standa upp í bátnum og róa tvo metra áfram standandi.
4. Fara úr bátnum,sleppa honum alveg og koma þér svo upp í hann aftur sjálf(ur) með frjálsri aðferð.
5. Scull.


Góða skemmtun í æfingunum og við hlökkum til samverunnar 


Ingi, María og Helga

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum