Paul Caffyn á Íslandi

09 júl 2007 21:18 #1 by maggi
Replied by maggi on topic Re:Paul Caffyn á Íslandi
Þetta verður kl: 20:00 endilega allir að mæta þetta verður fróðlegt.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

04 júl 2007 13:12 #2 by Ólafur Vigfússon
Paul Caffyn stoppar stutt við á Íslandi á leið sinni til Grænlands í næstu viku.
Paul hefur fallist á að vera gestur Sportbúðarinnar næsta þriðjudagskvöld, hitta íslenskt kayakfólk, sýna nokkrar myndir, segja sögur og svara fyrirspurnum.
Hver er Paul Caffyn? Trúlega einn merkasti kayakræðari samtímasögunnar. 360 daga leiðangur hans hringinn um Ástralíu var meðal annars valinn þriðji merkasti kayakleiðangur sögunnar, á eftir tveim ferðum yfir Atlantshafið árið 1928 og 1956. (sjá sportbudin.is)
Það má lesa sér ögn meira til um Paul Caffyn og leiðangra hans á vef Sportbúðarinnar - sportbudin.is. Við segjum nánar frá heimsókn Paul þegar nær dregur. Allir velkomnir.
Með kveðju,
Óli

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum