Breiðafjarðarferð klúbbsins

27 júl 2015 11:00 - 27 júl 2015 12:10 #31 by Gíslihf
Mæti: Gísli H Friðgeirsson 8220536

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 júl 2015 00:05 #32 by Larus
Breiðafjarðarferð klúbbsins hefst í Stykkishólmi föstudaginn 7 ágúst síðdegis
nánari tímasetning og brottfararstaður auglýst síðar.

Á föstudegi síðdegis verður róið frá Stykkishólmi í Elliðaey þar sem verður tjaldað og eyjan skoðuð.
Að morgni laugardags verða tjöld tekin upp upp og róið verður i austur áleiðis í Hrappsey með viðkomu i eyjum sem á leið okkar verða.
Í Hrappsey sláum við upp tjöldum og dveljum eina nótt.
Á sunnudeginum höldum við til Stykkishólms með einhverjum útúrdúrum.


Allt vatn skal hver þáttakandi taka meðferðis heimanfrá, reikna skal með 2-3 lítrum á hvern mann á sólarhring, athugið að ekki er hægt að nálgast vatn i eyjunum.
Algjört skilyrði er að hver þáttakandi taki allt sitt sorp til baka sjálfur og að ekki liggi neitt eftir.
Kayak skal vera sjókayak með lokuðum vatnsþéttum hólfum að framan og aftan og traustum dekklínum allan hringinn, sjá má mjög hjálplegan texta um útbúnað í kayakferð á síðu klúbbsins sem hafa má til hliðsjónar athugið að ekki er gerð krafa um að allir hafi allann þann búnað meðferðis.


Ferð þessi er opin til þáttöku þeim félögum i Kayakklúbbnum i Reykjavik eða kayakklúbbum á landsbyggðinni sem standast kröfur klúbbsins um getu til að takast á við 3 ára ferð skv. skilgreiningum klúbbsins:

Ferðir þar sem þvera þarf firði eða róa um svæði þar sem langar vegalengdir eru milli landtökustaða.
Lágmarkskröfur um hæfni: Að þátttakendur hafi æft félagabjörgun, séu byrjaðir að tileinka sér rétta róðratækni, stuðningsáratök og geti róið 20 - 30 km á dag.


Skráning i ferðina skal gerast hér á korkinum i þessum þræði, gefa skal upp nöfn þáttakenda og simanúmer.

Róðrar og fararstjórar eru undirritaðir
sem gjarna gefa upplýsingar i simum eða tölvupósti.


Guðni Páll Viktorsson
gudnipallv(hjá)gmail.com
664-1264

Lárus Guðmundsson
larusgudm(hjá)gmail.com
822-4340

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum