Egill Rauði lagfæringar á dagskrá

26 maí 2008 01:07 #1 by Ari Ben
Steini er á leið í bæinn og fer austur á mánudag og er með laust pláss á kerrunni sinni.

Áhugasamir geta haft samband við hann í 690 3877

Það verður síðan flutningabíll sem flytur báta frítt suður aftur í vikunni eftir Egil Rauða.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 maí 2008 00:56 #2 by Steini Ckayak
Verðin á Námskeiðunum hjá Freyju eru 4000kr háltíminn ( Einkakennsla )
Hjá Foster og Kristin kostar heilsdagsnámskeiðið á Laugardeginum 8000 kr
en 5000 kr námskeiðið á Sunnudeginum.

Keppnisgjaldið er 500kr í sprettróðurinn.

kv.
Steini

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

21 maí 2008 00:43 #3 by Steini Ckayak
Dagskrá Egils hefur tekið smávægilegum breytingum
Tímarnir á námskeiði Fosters á laugardeginum misrituðust aðeins.
Biðst velvirðingar á því og set hér inn nýja dagskrá

kv. Steini



Seakayak Iceland og Kaj kynna:
Sjókayak hátíð Egils Rauða Norðfirði
helgina 6.-8. Júní 2008

Dagskrá

Sérstakir gestir okkar í ár verða þau Freya Hoffmeister,
Nigel Foster og Kristin Nelson


Föstudagur

Gestir geta hist í kaffihúsinu Nesbæ og krunkað sig saman eftir að fólk er mætt á svæðið.
Nesbær mun einnig bjóða uppá matartilboð fyrir mótsgesti.

21:00
Freya Hoffmeister heldur fyrirlestur í safnahúsinu á Neskaupsstað.


Laugardagur

Námskeið
10:00
Freya verður með sín frægu veltunámskeið í sundlauginni og kennir á veltuvélina sína sem er bátur frá Japan sem allir geta velt að hennar sögn.
Verð: 4500kr fyrir hálftíma einkakennslu en á þeim tíma segist hún geta kennt hverjum sem er veltuna og bætt hana hjá öðrum.

10:00 – ca 16:00
Nigel Foster heldur námskeiðið Directional stability þar sem kennd er bátsbeiting og stjórnun sem karlinn er algjör snillingur í.




10:00 – 11:30
Félagabjörgun ofl. Grunnatriði í sundlauginni Steini, Ari ofl.
Frí kynning fyrir nýliða og aðra sem vilja kynna sér félagabjörgunina eða önnur grunn atriði svo sem grunn árabeitingu ofl



Þyrlubjörgun Kl 13:00

Landhelgisgæslan kemur á þyrlu, kippir upp ræðara af kayak.
Þeir voru í miklu stuði í fyrra í Stykkishólmi og kútveltu ræðurum um allan sjó. Lentu svo á fótboltavellinum til að leyfa fólki að skoða þyrluna í návígi.
Hafið í huga að þyrlan er komin og byrjuð kl: 13:00.


Ferðir

Fyrir vana

15:00 – ???
Lagt af stað kl: 14:30 ( eftir Þyrlubjörgun ) frá aðstöðu Kaj og róið út fyrir nípu stapa eða lengra ef stemmingin er góð. Skemmtileg fjara með mörgum innskotum, víkum og skerjum sem gaman getur verið að leika sér í.
Stefnt á sundlaugina strax að róðri loknum.

Fyrir þá sem vilja eittvað minna.
15.00 – 17.00
Fjölskylduferð fyrir alla þar sem róið verður skemur og í skjólsælli sjó.

20:00 – 21:30 ( ca. Allt eftir stemmingu )
Sameiginlegt grill á pallinum við safnahúsið fyrir mótsgesti.

22:00 Fyrirlestur
Nigel Foster Heldur fyrirlestur sinn þar sem hann rifjar upp sögur úr hringferðinni ´77 og flettar inní myndir og upplifanir seinna á róðrarferlinum.
Opið í Nesbæ og Egilsbúð eftir fyrirlestur fyrir þá sem enn eiga eitthvað eftir óupplifað þann daginn.



Sunnudagur


Námskeið

10:00
Sundlaug –félagabjörgun ofl. Steini Ari ofl.
Frítt

10:00
Freya verður áfram með veltunámskeiðin í sundlauginni.

09:00
Nigel heldur námskeiðið sitt Fun with foster sem er námskeið í alls kyns kayak tækni byggð upp á skemmtilegum leikjum.

13:00
Sprettróðrarkeppnin og Veltukeppnin fræga strax þar á eftir fyrir utan aðstöðu Kaj.
Skráning á staðnum.
Keppnisgjald er 500,-kr í sprettinn. En frítt í veltukeppnina.
Ekki ólíklegt að Freya sýni okkur nokkur vel valin trix eftir veltukeppnina.

Eftir keppni

Annað hvort róið út í Hellisfjörð og Viðfjörð, eða Sandvík - Vöðlavík og endað á Reyðarfirði seinnipart mánudags eða á þriðjudag..
Ferðatilhögun ræðst af þátttakendum og aðstæðum.

Nánari upplýsingar og skráning hjá Steina
www.seakayakiceland.com
steini@seakayakiceland.com
GSM: 6903877

Og Ara hjá kayakklúbbnum Kaj
kayakklubburinn@gmail.com
www.123.is/kaj
GSM:8639939<br><br>Post edited by: Steini Ckayak, at: 2008/05/20 21:04

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum