Kayakklúbburinn stendur fyrir reglulegum kayakæfingum og ferðum. Allir atburðir á vegum klúbbsins eru auglýstir í dagskrá.
Kayakkúbburinn fer reglulega í ferðir bæði á sumrin og á veturna. Þessar ferðir eru auglýstar í dagskrá klúbbsins og eru opin öllum félögum (og velunnurum) klúbbsins.
Áður en farið er í ferð er gott fyrir byrjendur að hafa samband við tengilið ferðarinnar og athuga hvort feriðn henti þeim. Kayakklúbburinn á einhvern búnað og nokkra báta til útláns í klúbbferðum. Það er sjálfsagt að fá þennan búnað lánaðan, en fólk þarf að hugsa vel um dótið og skila því aftur.
Þeir sem taka þátt í dagskrá klúbbsins gera það á eigin ábyrgð. En yfirleitt er hægt að treysta á ferðafélaga til að hjálpa til ef einhver lendir í vanda.
Keppt er um Íslandsmeistaratitla á sjókayak og á straumkayak, í kvenna- og karlaflokki. Bestur árangur á þremur kayakmótum gildir til lokastigagjafar um Íslandsmeistaratitla.
Keppt er í karla- og kvennaflokki.
Klúbburinn stendur fyrir félagsróðurm einu sinni í viku allt ári og sundlaugaræfingu yfir vetrar tíman.
Framboð af námskeiðum er breytilegt frá tíma til tíma.
Til að fá upplýsingar um hvaða námskeið eru framundan, vinsamlega sendið póst á infokayakklubburinn.is og við reynum að svara um hæl.