Félagsróður 30.07.2015

06 ágú 2015 22:31 - 06 ágú 2015 22:44 #1 by Orsi
Replied by Orsi on topic Félagsróður 6.8.
7 mættu í félagsróður. Við söknuðum sárt róðrarstjóra kvöldsins. Í alvöru. Þegar söknuðurinn ætlaði okkur að æra, fékk ég mér MALT, gyrti mig í brók - og tók stjórnina. Nú við gusuðum okkur norður fyrir Geldinganes í norðangolu með tilheyrandi hopperí eftir að hafa vísiterað Blikastaðakró og Þerney. Vorum yfir 2 tíma á sjó. Þessi röru.
Össi Bjössi Örsi, Sveinn Sara Katrín og Rúnar.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

31 júl 2015 01:19 #2 by Jónas G.
Replied by Jónas G. on topic Félagsróður 30.07.2015
Er hérna með nokkrar myndir úr róðrinum.
Takk fyrir mig
Jónas G.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

30 júl 2015 23:12 #3 by GUMMIB
Ellefu bátar á sjó. Farinn var réttsælis hringur kringum Geldinganes og Þerney. Kaffistopp í Þerney. Nokkrar tegundir af sjólagi smá alda fyrst síðan smá sláttur yfir í Þerney og endaði síðan í spegilsléttum sjó.

Tveir nánast að taka sín fyrstu áratök kláruðu það með prýði.

Takk fyrir mig
Gummib

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum