Norðlæg átt 3-10 m/s og bjart að mestu, en skýjað á Norður- og Austurlandi og stöku él. Hiti yfir daginn frá 1 stigi norðaustanlands, að 13 stigum á Suðurlandi. Bætir heldur í vind í kvöld.
Norðan og norðaustan 5-13 á morgun og dálítil slydda eða snjókoma norðaustan- og austanlands, en þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi.
Spá gerð 26.04.2024 10:13
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
1,6 | 24. apr. 19:58:47 | Yfirfarinn | 13,0 km A af Hamrinum |
1,5 | 25. apr. 06:48:07 | Yfirfarinn | 4,5 km VNV af Hábungu |
1,3 | 24. apr. 23:34:37 | Yfirfarinn | 5,6 km NA af Eldey á Rneshr. |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúksgíga heldur áfram með svipuðum hætti og gýs nú aðeins einn gígur. Áfram er jarðskjálftavirkni á svæðinu í lágmarki.
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má
sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 25. apr. 04:48
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | fös. 26. apr. | lau. 27. apr. | sun. 28. apr. |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraUppfært 23. apríl kl. 14:50
Áfram gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk, eins og hefur gert frá 5. apríl. Líkt og áður rennur hraun stutta vegalengd í opinni hraunelfur til suðurs frá gígnum en lengra í lokuðum rásum. Sá hluti hraunbreiðunnar sem liggur meðfram varnargörðum austan Grindavíkur hefur þykknað undanfarna daga eins og meðfylgjandi hreyfimyndir sýna. Myndirnar sýna muninn hraunbreiðunni á milli 18. og 23. Apríl. Efri myndirnar eru úr vefmyndavél Almannavarna sem staðsett er á varnargarði austan Grindavíkur og horfir á hrauntunguna sem rann í átt að Suðurstrandarvegi í upphafi eldgossins. Neðri myndirnar eru einnig úr vefmyndavél Almannavarna sem staðsett er uppi á Hagafelli og horfir til suðurs.
Lesa meira
Evrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er
liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á
Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá
því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið
nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu
eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis
fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð
yfir í um 6 mánuði.
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraMeðfylgjandi vindkælitafla er byggð á mælingum á varmatapi í um 1,7 m hæð frá jörð. Í töflunni er miðað við vindhraða í 10 m hæð en búið er að leiðrétta fyrir hæðarmun. Varast ber að treysta á töfluna í blindni því hún tekur ekki til allra kælingarvalda utandyra. Einnig þarf að huga að vætu og þeirri kælingu sem hún getur valdið.
Lesa meira