top of page

Uppfært: Vinnudagur sunnudaginn 17.maí

  • Writer: Húsnæðisnefnd
    Húsnæðisnefnd
  • May 8
  • 1 min read

Updated: May 15

Vegna óhagstæðrar veðurspár fyrir laugardag er vinnudeginum frestað til sunnudags, en þá er útlit fyrir fínasta veður og vonumst við til að sjá sem flesta.


Með vorinu er komið að hinum árlega vinnudegi.

Að venju verður lögð áhersla á að ryðhreinsa gámana, grunna þá og mála ásamt tiltekt í aðstöðunni og snyrtingu á nánasta umhverfi.

Ýmis önnur verkefni liggja einnig fyrir, áframhaldandi vinna við að leggja tjörupappa á þök gámanna, opnun á gólfi í gám 15 til að gera op rotþróar aðgengilegt, fjarlægja leifar steinbekkjarins sem var eyðilagður í fyrra svo eitthvað sé nefnt.

Félagsmenn sem hafa tök á mega endilega taka með sér verkfæri og áhöld sem þeir telja að gætu gagnast við vinnuna (s.s. skóflu, stiga, framlengingarsnúrur oþh).

Grillveisla í lokin að venju þar sem Valli grillmeistari töfrar fram kræsingar að sinni alkunnu snilld.


Mæting kl.10.

Vonumst til að sjá sem flesta og munið að margar hendur vinna létt verk.


Nefndin



Recent Posts

See All
Aðgangsmál

Nú er búið að endurnýja búnaðinn fyrir hurðaopnunina á aðstöðunni okkar í Geldinganesi. Nýi búnaðurinn styður VoLTE yfir 4G, en sá eldri studdi bara 2G/3G farsímakerfin sem verða lögð niður á næstunni

 
 
bottom of page