Sólstöðuvatnastuð 2026
- Ferðanefnd

- Jun 15
- 2 min read
Þá er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir. Sólstöðuvatnastuð 2026. Að þessu sinni verður farið í Reyðarvatn sem staðsett er stutt frá Ok og Skjaldbreið. Þangað er nokkuð greiðfært öllum bílum en hugsanlega þarf að selflytja báta síðasta spölinn á jeppum ef slóðinn niður að vatni er slæmur.
Reyðarvatn er býsna stórt stöðuvatn í uppsveitum Borgarfjarðar og er uppspretta Grímsár í Borgarfirði.
Þetta verður léttur róður, nóta ekki þjóta. Erfiðleikastig 1,5 ár. Sjá upplýsingar um erfiðleikastig á heimasíðu klúbbsins.
.
Stuttar vegalengdir, innan við 10 km á dag. Mjög sniðugt fyrir byrjendur í kayaktjaldferðabransanum. Við munum svo tjalda þar sem við finnum fallegan náttstað. Hægt er að kaupa veiðileyfi í vatninu fyrir það sem það vilja og þykir þetta mjög skemmtilegt veiðivatn.
Upplýsingar um veiði og veðileyfi má nálgast hér:
Athugið þetta er fjallavatn og fjallavötn hafa gjarnan talsvert af mýflugu. KOMIÐ MEÐ FLUGNANET!!! EKKI GLEYMA ÞVÍ!!!
Lagt verður í hann í samfloti frá Kayakklúbbnum Geldinganesi kl 11:00 á laugardeginum 20. júní og komið til baka síðdegis á sunnudaginn 21. júní.
Síðasti sólstöðuvatnastuðsróður var gríðar vel heppnaður. Hjálpumst að að gera þennan enn betur heppnaðan.
Upplýsingar um hvað skal taka með í tjaldferðir á kayak má sjá á heimasíðu klúbbsins:
Að þessu má við bæta að góða skapið og FLUGNANET er bráðnauðsynlegt í þess háttar róðrum sem þessum.
Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið heyrt í mér í síma 8611978 sent mér PM á VillimadurCom Reykjavík eða sent mér email á villimadur@villimadur.com.
Skráning fer fram í Abler. Vinsamlega skráið ykkur þar svo ég sjái fjöldann sem ætlar að mæta.
Að lokum:
Langtímaveðurspáin lítur vel út. Hæglætisveður og 10-15°C og gæti jafnvel sést til sólar. Við uppfærum það eftir því sem nær dregur.
Ef veðurhorfur eru óhagstæðar þá reyni ég að færa ferðina á stað sem er hagstæðari. Fylgist með.
Ástar og saknaðarkveðjur
Sveinn Elmar






