Nýskráning í klúbbinn er hér í þetta form. Uppfærsla á skráningu má koma þarna í gegn líka.
Formið biður um kennitölu, fullt nafn, email og síma einstaklings.
Skráning skiptist í einstaklingsskráningu eða fjölskylduskráningu. Ef um fjölskylduskráningu er að ræða þurfa allar viðkomandi kennitölur að fylgja.
Skráning telst uppfyllt við móttöku gjaldkera á bankakvittun millifærslu á greiðslu félagsgjalds.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar, svo sem um félagsróðra klúbbsins, sundlaugaæfingar, ferðir, tengiliði nýliða og fleira má finna á heimasíðunni okkar undir Klúbburinn – Til nýliða.
Ef það koma upp einhverjar spurningar er um að gera að senda þær á okkur á netfangið info<hjá>kayakklubburinn.is