Image

Sjókayakklúbbferð í Straumfjörð á Mýrum helgina 4-6 júlí 2004. Kayakklúbburinn efndi til sinnar árlegu helgarferðar í júlíbyrjun, ferðar sem einkum er ætluð byrjendum til að kynnast sjókayaksportinu á skemmtilegu kayakróðrarsvæði með þeim sem vanari eru og hafa öðlast reynslu í ferðamennsku á sjókayak.
Kayakklúbburinn efndi til sinnar árlegu helgarferðar í júlíbyrjun ,ferðar sem einkum er ætluð byrjendum til að kynnast sjókayaksportinu á skemmtilegu kayakróðrarsvæði með þeim sem vanari eru og hafa öðlast reynslu í ferðamennsku á sjókayak.
Ferðanefndin hafði undirbúið og skipulagt ferðina og sett ferðaáætlunina á heimasíðu Kayaklúbbsins ásamt því sem góðar umræður fóru fram á “korknum”,kayakfólksins sín á milli. Straumfjarðarsvæðið er afar viðkvæmt á varptíma þeirra fugla sem þarna eiga sín hreiður og alveg sérstaklega æðarfuglsins. Það er því mjög mikilvægt að kayakróðrarferðir um þetta svæði séu með leyfi og í sátt við landeigendur. Reynir Tómas í ferðanefnd, hafði allan veg og vanda af þeim þætti og var hann jafnframt tengiliður ferðarinnar.
Alls mættu 20 sjókayakræðarar til róðra ,flestir strax á föstudagskvöld, og var búið við góðar tjaldaðstæður í Straumfirði. Aðalróður helgarinnar var á laugardeginum og er róðrarleiðin sýnd hér á meðfylgjandi korti. Róðrarleiðin var um 20 km.

Image

Verulegur hæðarmunur er á milli flóðs og fjöru á þessu svæði eða um 4 metrar. Róðrarleiðin á útleið var fjær landinu , eins og sést á kortinu, vegna útfallsins og síðan sýnist hún sumstaðar liggja yfir land , en það fór á kaf á flóðinu, sem var á heimleið. Milt og gott veður var meginn hluta ferðarinnar, en súld og stundum smárigning, en á heimleið gerði VNV 8-10 m/sek vindstreng af hafi og á móti.

Allir sjókayakræðararnir stóðust róðurinn með mikilli prýði . Góður og skemmtilegur hópur og á breiðu aldursskeiði.

Um átta kayakræðarahópur réri síðan á sunnudeginum, sunnan varpeyja og í Hjörsey auk þess sem tveir réru á föstudagskvöld út í Þormóðssker og til baka aftur og sumir réru
Borgarfjörðinn þveran og í Straumfjörðinn seint að kvöldi föstudags. Myndefni og frásagnir þeirrra ferða eru ekki inni í þessari umfjöllun.

Straumfjörður á Mýrum

Image

Á myndinni sést straumröstin í fjarðarmynninu , sem Straumfjörður dregur nafn sitt af. Verulegur straumur er þarna í fjarðarmynninu , einkum á útfallinu. Straumfjörður á Mýrum var um aldir verslunarstaður sveitanna á innanverðu Snæfellsnesi ,Mýra og Borgarfjarðar með ýmsum “ handhöfum verslunarleyfa”, m.a dönsku einokunarverslunarinnar góðkunnu , en verslun lagðist með öllu af þarna um aldamótin 1900 og fluttist þá í Borgarnes. Þar höndla menn enn í dag. Verslunarhúsin voru aðallega á nesinu sem myndin er tekin frá og eru enn sjáanlegar vegghleðslur þeirra , allt frá tímum Hansakaupmanna.
Á nútíma er Straumfjörður þekktur fyrir sjóslysið mikla sem varð í september árið 1936, þegar franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas ? strandaði á skerinu Hnokka , í ofsaveðri. 39 menn fórust, en einn komst lífs af. Hnokki er rúma 3 km sunnan Straumfjarðar. Handan fjarðar er Kóranes, en fyrir það lá róðrarleið okkar.

Miðnætursól í Straumfirði á föstudagskvöld

Image

 

Tjaldsvæðið í Straumfirði

Image

Byrjað er að gera klárt fyrir laugardagsróðurinn . Lagt var af stað um kl 11.00

Lagt af stað frá Straumfirði

Lagt af stað

Gummi gerir sjóklárt—GPS staðsetning sett inn. Rúmlega er hálf útfallið. Falleg og góð skeljasandsfjara er í Straumfirði

Róðurinn frá Straumfirði er hafinn

Image

Í baksýn er Sandey. 20 kayakræðarar leggja í róðurinn. Stillt er í sjóinn . Róið var þvert fyrir mynni Straumfjarðar, en þar sem farið var að nálgast liggjandann var straumröstin hæg og ljúf, en á heimleiðinni í VNV strengnum og á aðfallinu þurftu þeir sem næst landinu réru að taka verulega á yfir straumröstina.

Við Tangey

Image

Við Tangey sunnan Álftaness á Mýrum

Image

Lending í fjörunni sunnan við Litlabæ á Álftanesi

Image

Víðáttumiklar fjörur eru þarna á Álftanesinu og mjúkur skeljasandur . Hópurinn hefur tekið land og stefnt er á kaffipásu og spjall.

Lending sunnan Litlabæjar á Álftanesi

Image

Aðfallið er að byrja og betra að draga kayakana vel upp á sandinn , því hallinn er lítill og sjórinn því fljótur að flæða yfir stórt svæði

Kaffipása og fróðleikur í melgresinu á Álftanesfjörum

Sögustund

Leiðangursstjórinn Reynir Tómas flytur hugvekju um hvernig skemmtilegur kayakróður sem þessi verður til innan félagastarfs Kayakklúbbsins— kayakfólkið hlustar með andakt og verður um margt fróðara . Þarna var gott að stoppa endurnýja kraftana áður en við héldum inn að mynni Borgarfjarðar, sem var næsti áfangi.

Róið á lygnum sjónum innan við Girðisflögur í mynni Borgarfjarðar

Image

Róið með Girðisflögum í mynni Borgarfjarðar

Image

Eyjar og sker taka sífelldum breytingum fyrir áhrif flóðs og fjöru og mikið sjónspil að upplifa. Sjókayakróður er engum öðrum sjóferðamáta líkur— friðsæll og frjáls þegar vel viðrar.

Í Álftanesós

Image

Ein hugljómun ferðaplansins var að róa inn Álftanesósinn og síðan með vaxandi flóði alveg inn í Straumfjörð. Í umræðunni á “ Korkinum” fyrir ferðina var velt upp tímasetningum varðandi flóð og fjöru. Hvaða máli skiptir það ?? sögðu róðrarfélagar . Svarið fékkst hér í Álftanesós . Við vorum ekki á réttum stað á réttum tíma og hér dregur Reynir Tómas í land og ákveðið er að meta stöðuna. Það vantaði sjóinn í þessar flæður. Eins og einu sinni var sagt “Kóngur vill sigla , en byr ræður” En þetta var mjög gaman og eftirminnanlegt og í raun “rúsínan í pylsuendanum” á róðrinum.

Í Álftanesósnum

Image

Hér er fyrsta strand í ósnum . Í baksýn er kirkjan í Álftanesi á Mýrum.

Image

Hér höfum við smásaman þokast um 1 km upp í Álftanesflæðurnar eftir því sem aðfallið vex.

Image
Þegar hér er komið er orðið sýnt að lengra verður ekki komist fyrr en eftir einhverja klukkutíma. Það vatnar tæpast yfir tærnar á Jóa þegar hann stígur úr kayaknum. Ákveðið var að snúa við og hætta þar með við að róa inní Straumfjörð þessa leið. Á útleiðinni, fremst í ósnum, var kominn bullandi ólgustraumur á innleið og var skemmtilegt að þvælast yfir þá ólgu. Þegar út á haf var komið var hafgolan að vinda sig uppí strekkings mótvind sem hélt okkur vel við róðurinn allt inní Straumfjörð.


Þessum skemmtilega laugardagsróðri lauk síðan við tjaldstæðið í Straumfirði milli kl. 17 og 18 þann 5. júlí 2004 eftir 20 km sjókayakróður frá Straumfirði með suðurströnd og eyjum Álftaness á Mýrum ,inn í mynni Borgarfjarðar og með ýmsum krókaleiðum til baka.

 

Ástæða er til að hvetja kayakræðara ,einkum hina óreyndari, til þáttöku í ferðum sem þessari og öðlast nauðsynlega reynslu með því móti.

Texti: Sævar Helgason
Myndir {picasa} : Guðmundur Jón Björgvinsson og Sævar Helgason