Lykill www.theromancefiles.com/

 

Innhringikerfi, notandinn hringir í símanúmer (sem er gjaldfrjálst).

Það opnar læsinguna á hurðinni í kaffigámnum í 5-10 sek.  Í gráum lyklakassa við rafmagnstöfluna í horninu, rétt innan við dyrnar til hægri, þegar menn ganga inn eru lyklar merkir öllum gámum.  Þessum lyklum þarf að skila á sinn stað áður en menn halda á sjó þannig að þeir séu klárir fyrir næsta félaga sem mætir til róðurs eða kemur að landi meðan viðkomandi er á sjó.

Til að innhringiaðgangurinn virki þarf að skrá símanúmerið þitt í innhringistöðina. Það fæst gert með því að senda póst á geldinganes(hja)gmail.com með upplýsingum um nafn og símanúmer.  Þegar skráningu er lokið fær viðkomandi sendan tölvupóst því til staðfestinga. 

Allir félagsmenn með kayak í geymsluhólfi eða félagsmenn á sínu öðru félagsári geta óskað eftir að fá símanúmerið sitt skráð.

Þetta kerfi stuðlar að öryggi félagsmanna á sjó.
Menn fara ekki á sjó án síma og þurfa að vera með hlaðna síma.
Menn eiga helst ekki að vera einir á sjó og líkurnar að tveir verið batterílausir eru hverfandi.
Bregðist allt þetta eru oftast einverjir hundaeigendur í fjörunni sem hægt er að fá að hringja hjá í einhvern félaga sem er með aðgang á fá hann til að hringja í stöðina og opna.
Klikki allt þetta þarf að hringja í einhvern meðlim húsnæðisnefndar og biðja um aðstoð og hann brunar til þín og reddar málunum með bros á vör.

Róðrarkveðja húsnæðisnefnd