Mynd frá SævariSíðastliðinn laugardag 24. ágúst fór fram hálfmaraþon Kayakklúbbsins en ákveðið var að hafa hálfmaraþon í ár í stað Hvammsvíkurmaraþonsins. Róið var frá Nauthólsvík til Geldinganes og var vegalengdin rúmlega 22 km með einu skyldustoppi við Gróttu (5 mín). Aðstæður voru ágætar, en þó blés aðeins á leggnum Nauthólsvík-Grótta.

11 ræðarar mættu til leiks og luku 10 keppni. Ólafur B Einarsson sigraði í keppnisbátaflokki karla (02.15:05 á Dominator XL), Eymundur Ingimundarson í ferðabátaflokki karla (02:16:07 á Kirton Inuk) og Þóra Atladóttir í ferðabátaflokki kvenna (02:37:27 á Rockpool Taran).

Keppnisnefnd þakkar þeim sem aðstoðuðu við keppnina en án öflugrar öryggisgæslu og annarrar aðstoðar færi keppnin ekki fram. Meðal þeirra sem aðstoðuðu við framkvæmdina voru Bjarni, Sævar, Gísli, Maggi, Marta, Hildur og Guðrún. Auk þeirra voru Guðni Páll og Eva á fylgdarbát (sem GG sjósport lagði til) svo og fylgdi björgunarbátur frá Björgunarsveitinni Ársæli keppendum. Bátafylgdin var sértaklega mikilvæg í ljósi þessa að keppendur þurftu að þvera siglingarleiðir.

Nánari úrslit:

Leggur 1 Nauthólsvík - Grótta 8,3 km
Leggur 2 Grótta -Geldinganes 13,8 km
Meðalhraði er í km/klst

Konur í ferðakeip

Röð í
flokki
Nafn keppanda Heildartími Meðalhraði Millitími
Leggur 1
Meðalhraði Millitími
Leggur 2
Meðalhraði Gerð markeips Euro ár Grænlensk
ár
Vængár Keppnis
númer
1 Þóra Atladóttir 02:37:27 8,42 00:59:38 8,35 01:37:49 8,46 Rockpool Taran X 21
2 Klara Bjartmarz 02:45:04 8,03 01:02:06 8,02 01:42:58 8,04 NDK Explorer X 26

Karlar í keppniskeip

Röð í
flokki
Nafn keppanda Heildartími Meðalhraði Millitími
Leggur 1
Meðalhraði Millitími
Leggur 2
Meðalhraði Gerð markeips Euro ár Grænlensk
ár
Vængár Keppnis
númer
1 Ólafur Einarsson 02:15:05 9,82 00:52:21 9,51 01:22:44 10,01 Dominator XL X 4
2 Bernhard Kristinn 02:25:55 9,09 00:57:10 8,71 01:28:45 9,33 Dominator XL X 25
3 Gunnar Svanberg 02:27:05 9,02 00:56:20 8,84 01:30:45 9,12 Dominator XL X 29

Karlar í ferðakeip

Röð í
flokki
Nafn keppanda Heildartími Meðalhraði Millitími
Leggur 1
Meðalhraði Millitími
Leggur 2
Meðalhraði Gerð markeips Euro ár Grænlensk
ár
Vængár Keppnis
númer
1 Eymundur Ingimundars. 02:16:07 9,74 00:50:55 9,78 01:25:12 9,72 Kirton Inuk X 22
2 Sveinn Axel Sveinsson 02:16:45 9,70 00:50:55 9,78 01:25:50 9,65 Rockpool Taran X 30
3 Gunnar Ingi Gunnarsson 02:31:23 8,76 00:55:10 9,03 01:36:13 8,61 Valley Nordcap X 14
4 Egill Þorsteins 02:33:52 8,62 00:55:48 8,92 01:38:04 8,44 Rockpool Taran X 9
5 Össur Imsland 02:43:56 8;09 01:00:50 8,19 01:43:06 8,03 NDK Explorer X 17