Félagsróður fimmtudaginn 14.5.2020

15 maí 2020 11:22 - 15 maí 2020 11:25 #1 by gsk
17 bátar á sjó í gær i ágætu veðri.

Fórum Viðeyjarhring með kaffistoppi i Viðey. Fengum smá surf aðstæður á leiðinni sem var ekki leiðninlegt.

þakka kvöldið,
Gisli K.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

14 maí 2020 13:32 #2 by gsk
Spáin virðist ganga eftir.

Stefnir í smá rigningu en að öðru leiti ágætt veður.

Nú er bara að girða sig í brók og drífa sig.

Sjáumst,
Gísli

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

13 maí 2020 14:04 - 14 maí 2020 13:30 #3 by gsk
Félagsróður fimmtudaginn 14.5.2020

Sem stendur lítur út fyrir að væta verður á morgun í róðrinum. Stefni á Viðeyjarhring með kaffistoppi. Sjáum hvort það gangi ekki eftir.

Eins og í síðasta félagsróðri þá reynum við að halda í lágmarki umgengi um aðstoðuna okkar og mætum því eins mikið tilbúin og hægt er. Lyklar að gámum verða í boxi með sápuvatni og viðkomandi sem tekur lykil skilar honum aftur í boxið eftir að hann lokar gámnum.

Ítreka að búnings- og kaffiaðstaðan er lokuð. Snyrting verður opin fyrir þá sem þurfa.

Hlakka til að sjá sem flesta á sjó, ef það er eitthvað þá er ykkur velkomið að heyra í mér.

Sjá hér að neðan það sem áður var sent út:

Það er von okkar allra að allir sýni þessu skilning og aðstoði okkur að viðhalda þessu eins og best verður á kosið. 

  • Róðrar á þessu tímabili eru eingöngu fyrir vana og þá sem hafa lokið byrjendanámskeiði eða sambærilegri þjálfun.
  • Félagabjarganir eru undir stjórn róðrastjóra og framkvæmdar með 2 metra reglu í huga.
  • Notkun búningsaðstöðu verður óheimil í félagsróðrum.
  • Lánsbátar og árar í boði.
  • Annar lánsbúnaður verður því miður ekki í boði (Vesti,jakkar,buxur húfur og hanskar)
  • Hvatt verður til að tveggja metra nándarreglan verði virt.
  • Hámarks bátafjöldi á palli er 10 bátar.
  • Áfram verði hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.
  • Róðrarstjóri mun sjá til þess að opna lyklaskáp og koma lyklum út á bekk.
  • Róðrarstjóri skipar aðstoðarmenn í hverjum róðri sem munu aðstoða við framkvæmd.
kv.,
Gisli Karlsson
6607068

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum