Wales 2019

13 mar 2019 20:08 - 13 mar 2019 20:08 #1 by Ingi
Wales 2019 was created by Ingi
Ég fór í fyrsta sinn til Wales fyrir tæpu ári síðan. Nokkrir félagar hafa stundað það að fara þangað á vorin síðustu ár. Ég man ekki hverjir fóru fyrst og hvenær það var. En ég hafði ekki tök á að fara fyrr en á síðasta ári og ákvað það á leiðinni heim að ég kæmi aftur næst. Nú er farið að líða að þessu og maður er farinn að hlakka til og kvíða fyrir eins og það hljómar nú einkennilega. Það er nú aðallega vegna þess að þetta er virkilega gaman og krefjandi á sama tíma. Ég brenndi mig á því að vera ekki í nógu góðu formi síðast og ætla að reyna að bæta úr því núna. En það hefur nú ekki verið eins og ég reiknaði með svo að þrekið er ekki komið á þann stað sem mér finnst ásættanlegt. En það stendur til bóta. Ég hvet alla sem hafa áhuga á að bæta sig í þessu sporti að kíkja út fyrir boxið og reyna eitthvað í svipuðum dúr.
kv
Ágúst Ingi

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum