White - other

25 feb 2019 22:33 #1 by Ingi
Replied by Ingi on topic White - other
Þá ert þú White other + . Ætli við séum það ekki öll hérlendis. :laugh:
kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

25 feb 2019 21:11 - 25 feb 2019 21:14 #2 by Gíslihf
White - other was created by Gíslihf
Mér hefur alltaf þótt skrýtið hvað Bretarnir vilja vita nákvæmlega um hvaða kynstofni og litarhætti maður tilheyrir. Ég fer senn að fylla út enn eitt formið fyrir þá - og svo munið þið eftir því hér áður að áður en maður lenti í Englandi söfnuðu flugfreyjur saman immigration spjöldum með persónuupplýsingum. Hvernig passa svo EU persónuverndarlög við Facebók og Google sem vita um allt sem ég hef lækað við og Kaninn vill helst lífsýni :unsure:

Jæja, ég er White-other en ekki white-British eða white-Irish, hvað þá black-Caribbean, mixed white&black Caribbean, Chinese, Bangladeshi eða eitthvað annað af listanum. Reyndar gætu verið einhver frönsk gen í mér, því að önnur amman átti ætttir að rekja til Austfjarða og var nokkuð dökk og brúneygð og þegar Lilja eignaðist okkar fyrsta barn í Aachen í Þýskalandi, héldu hjúkkurnar að pabbinn væri spænskur og þær tóku ekki mark á henni að barnið væri að koma og fóru bara í kaffi, því að hún sagði þeim of yfirveguð hve langt hún væri komin í ferlinu en æpti ekki 'mamma mía' eða annað sem ómaði um allan spítalann.
Þessi dóttir okkar varð fimmtug um daginn.

Ég tel þó öruggara að láta BC ekki vita um þessi hugsanlega frönsku gen, en háðu þeir mörg stríðin hér áður fyrr :)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum