Kayakferð til Kanada í ágúst

15 jan 2019 19:40 - 15 jan 2019 19:59 #1 by Sveinn Muller
Ég ætla að fara í 5 daga skipulagða kayak ferð á Georgian Bay 15.-19. ágúst, en Georgian Bay er 11.500 km2 stöðuvatn. Þar er meðal annars að finna 30.000 eyjar, stórkostlegt náttúru- og dýralíf og skógi vaxnar eyjar. Þetta er ekki erfitt róðrarsvæði og ekki er krafist mikillar kayak reynslu. Gist er í tjöldum.

Kayak ferðin kostar um það bil ISK 110.000. Inn í því er matur, leiðsögn, kayakar og allur kayak búnaður. Nánari upplýsingar um ferðina er að finna hér . Þá bætist við kostnaður vegna flugs til Toronto, akstur á svæðið og mögulega gisting á hóteli fyrir og eftir ferð.

Ég og Helgi Þór fórum í kayak ferð á eigin vegum um þetta svæði í september 2017. Stutt ferðalýsing ásamt myndum úr ferðinni er að finna hér .

Um að gera að skrá sig í þessa ferð áður en hún fyllist. Greiða þarf 20% staðfestingargjald við skráningu. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Muller í síma 844 4240.
Það væri gaman ef fleiri myndu skella sér með í þetta ævintýri.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum