Félagsróður í kvöld- Brakandi blíða. Mæting19:30

10 jún 2016 09:53 #1 by Guðni Páll
Það voru 25 báta á sjó í gærkvöldi í félagsróðri. Mörg ný andlit og gaman að sjá nýtt fólk.
Viðey var hringuð með kaffi stoppi við skálann þar bættist einn ræðari í hópinn. Því komu 26 bátar heim.
Ein óvænt velta þar sem reynt var að bjargar rusli úr sjónum en gekk björgun vel og varð viðkomandi ekki meint af.
En gott veður var og hlítt, einnig voru 3 brimskíða/surfski kajakar sem mættu og var gaman að sjá þau með okkur.
Þannig flottur róður á fallegu sumarkvöldi.
Ég ætla ekki að reyna að nefna öll nöfnin á þeim sem mættu.

kv Guðni

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

09 jún 2016 22:45 #2 by Þorbergur
Ég tók símahulstur með mér heim sem ég hélt að ég hefði gleymt fyrr í vikunni, en sá strax er ég kom heim þó ég hefði ekki séð það er ég fór af stað. Þeim sem vatar hulstrið sitt getur haft samband við mig í síma: 8220546.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

09 jún 2016 16:27 #3 by Guðni Páll
Ju auðvitað er þetta villa. Afsakaðu þetta. Auðvitað er mæting 18:30!!

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

09 jún 2016 15:28 #4 by Hannes
Mæting kl. 19:30? Er þetta innsláttarvilla eða er búið að færa tímann aftur um 1 klst. frá hinum hefðbundna tíma?

Kv.
Hannes

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

09 jún 2016 11:37 - 09 jún 2016 14:30 #5 by Guðni Páll
Það er hefðbundin félagsróður í kvöld. Veðurspá er góð, það gæti aðeins dropað á okkur en það verður ekki mikið.
Reikna með góðri mætingu og hvet þá sem ætla að nýta sér klúbb báta að mæta snemma á svæðið.
Róðrarleið verður ákveðin á staðnum, gott er að hafa smá nesti með sér eins og venjulega þá verður LG stopp á miðri leið.

Kv Róðrarstjórinn

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum