Kæru félagar,

Nú hafa félags- og geymslugjöld verið send út vegna 2014. Gjalddagi þeirra er 1. mars 2014.

Hvetjum félagsmenn til að greiða greiðsluseðil í heimabanka á réttum tíma.

Endilega hafa samband við gjaldkera ef einhverjar athugasemdir eru.

Þeir sem enn skulda félagsgjöld eru hvattir til að ganga frá sínum málum sem fyrst. Að gefnu tilefni þá er þeim sem skulda geymslugjöld bent á að ef ekki er búið að greiða gjaldfallin geymslugjöld fyrir 15. mars 2014 þá áskilur klúbburinn sér rétt á að færa viðkomandi báta yfir í annan gám sem er læstur öllum. Hafa verður samband við gjaldkera klúbbsins til að fá aðgang að bátnum og það mun ekki vera hægt nema búið sé að gera upp. Með þessu missir viðkomandi það pláss sem hann hefur haft og verður úthlutað nýja ef eitthvað er laust. Vinsamlega setjið nafn og kennitölu í öll samskipti.

Eftir 1. júní 2014 áskilur klúbburinn sér rétt á að selja báta sem ekki hefur verið staðið skil á gagnvart geymslugjöldum. Hægt er að nálgast upplýsingar um kennitölu og reikning klúbbsins hér.

Kveðja, Stjórnin