Félagsróður 10. feb

10 feb 2018 16:49 #1 by Ingi
Replied by Ingi on topic Félagsróður 10. feb
Já það var fínt að mæta í morgun áður en að brælan byrjaði. Óvenjuleg vindátt og frákastið við vesturenda Geldinganessins var með skemmtilegra móti þó ekki hafi verið hvasst þar um kl 1030. Fullt af selum á ferðinni og með góðum skutli verið hægur vandi að ná einum en það borðar þetta engin heima hjá mér.
kv

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

10 feb 2018 12:24 #2 by SAS
Félagsróður 10. feb was created by SAS
Hvar voru allir?

Settur róðrarstjóri forfallaðist vegna veðurs í Öræfasveitinni. Við Hörður og Ágúst Ingi rérum í vetrarblíðunni Geldinganeshring, tíðindalaus og léttur róður.

kv
Sveinn Axel

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum