Félagsróður 28. mars

28 mar 2015 15:59 #1 by Klara
Replied by Klara on topic Félagsróður 28. mars
Róðrarstjóri fór að heiman í morgun í þéttri snjókomu og var ekkert of bjartsýn á róðrarveður. En viti menn, þegar komið var á Geldinganesið var glampandi sól og hið fallegast vetrarveður. Tólf bátar á sjó og róið var Geldinganes - Lundey. Frábærar aðstæður með smá úthafsöldu eftir rokið undanfarið en ekkert sem kom hópnum úr jafnvægi.

Takk fyrir skemmtilegan róður, sjáumst næst.
Klara.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

28 mar 2015 13:16 #2 by Þorbergur
Replied by Þorbergur on topic Félagsróður 28. mars
Nokkrar Myndir frá róðrinum
The following user(s) said Thank You: Andri

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

27 mar 2015 07:09 #3 by Klara
Það verður félagsróður á morgun, sami staður og sami tími.
Skv. veðurspá blæs nokkuð í kvöld (SV átt) og nótt til tilbreytingar en það ætti að vera byrjað að lægja í fyrramálið.
Hitastig vonandi rétt yfir frostmark, fjara um 7 og flóð upp úr 13.
Róðrarleið verður ákveðin á pallinum en ef veður og aðstæður leyfa þá er aldrei að vita nema að það verði eitthvað eyjahopp. Síðast var það Þerney, á morgun verður það ?

Sjáumst hress á morgun.
Kveðja,
Klara.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum