20% afsl af öllu, fimmtudag 20.nov í GG Sport

18 nóv 2014 09:52 #1 by gummibatar
Við erum að opna nýja fjallaálmu og ætlum að fagna með því að bjóða upp á 20% afslátt af öllum vörum hjá okkur. Auðvitað er sjóbúnaður, grunnurinn okkar góði enginn undantekning.

Það er nýtt í þessu að þær vörur sem hafa aldrei verið á tilboði eða útsölu verða með sama afslætti eins og t.d. þurrgallar, skór, sealskinz og fl. enda sérstakt tilefni.

Við erum búnir að plata Magga til að vera með kynningu á starfseminni ykkar kl 18 og þá er um að gera að breiða út boðskapinn.

Við vonumst til að sjá ykkur öll hress og kát á fimmtudaginn fagna góðu gengi með okkur á árinu, skoða nýju fjallaálmuna okkar og gera góð kaup.

Allar vörur á www.ggsport.is

kk Leifur og Tommi, GG Sport (Gúmmíbátar & Gallar)

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum