Æfingaróðrar, vangaveltur að hausti.

22 okt 2014 15:33 #1 by Guðni Páll
Fyrir mér hafa þessir róðrar verið svona kraft og færnisróðrar. Og menn hafa hingað til verið á sinni ábyrgð og ég vill svosem meina að það sé nú líka þannig í auglýstum félagsróðrum, þar að segja að maður er á sinni ábyrgð en auðvitað er frábært að hafa það öryggisnet sem er í þeim róðrum. En það má eflaust deila hvort að þriðjudags róðrar ættu að vera hluti af dagskrá.
Til dæmis ef minna vanur ræðari mætir til að róa og það mætir enginn sem er með meiri reynslu. Hvað þá? fer sá hin sami heim eða fer hann á sjó? ég persónulega myndi halda að hann færi á sjó, hann er jú kominn svæðið og búin að gera allt klárt jafnvel gera ráðstafanir. Þess vegna held ég að þessir róðrar á þriðjudögum sé fínir eins og þeir eru. Vissulega er hægt að hafa samband við menn og athuga hvort þeir ætli að mæta og mæta þá með þeim. Þá færðu þetta svokallaða öryggisnet og þá er önnur spurning eru allir tilbúnir að í það?

Þetta er auðvitað mitt persónulega mat en ekki klúbbsins.

kv Guðni Páll

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

22 okt 2014 08:39 - 22 okt 2014 10:09 #2 by Gíslihf
Í síðasta æfingaróðri var ég að velta fyrir mér að þessir róðrar á þriðjudögum hafa ekki verið hluti af formlegri dagskrá klúbbsins og ekki verið felldir undir öryggisstefnu klúbbsins.

Ég tel að hæfileg viðmiðun um færni þátttakenda sé a.m.k. 3ja stjörnu færni (BCU) sem stundum er kallað að vera "sjálfbjarga" ræðari og að því tilskildu væri óhætt að auglýsa þessar æfingar sem hluta af vikulegri dagskrá.

Hvernig sú færni er svo metin eða staðfest er svo annað mál sem ræða mætti nánar.
Það gæti hæglega verið námskeið á vegum klúbbsins, eða eigið mat.

Kveðja,
Gísli H. F.

Please Innskráning or Create an account to join the conversation.

Powered by Kunena Forum